Facebook Facebook-messenger Search
Persona.is
  • Meðferðaraðilar
    • Björn Harðarson
    • Páll Einarsson
    • Eyjolfur Örn Jónsson
    • Davíð Vikarsson
    • Eygló Guðmundsdóttir
    • Reynar Kári reynar @ persona.is
  • Greinar
    • Persónuleikavandamál
    • Samskipti
    • Sjálfsvíg
    • Streita
    • Svefn
    • Vinnan
    • Átraskanir/Offita
    • Börn/Unglingar
    • Fíkn
    • Kvíði
      • Árátta-Þráhyggja
    • Ofbeldi
    • Sambönd
    • Sjálfstraust
    • Tilfinningar
    • Uppeldi
      • 0-5 ára
      • 13-18
      • 6-12
    • Þunglyndi
    • ADHD
    • Áföll
    • Annað
      • Aldraðir
      • Geðsjúkdómar
      • Meðferð
      • Meðvirkni
      • nám
  • Hafðu samband
Menu
  • Meðferðaraðilar
    • Björn Harðarson
    • Páll Einarsson
    • Eyjolfur Örn Jónsson
    • Davíð Vikarsson
    • Eygló Guðmundsdóttir
    • Reynar Kári reynar @ persona.is
  • Greinar
    • Persónuleikavandamál
    • Samskipti
    • Sjálfsvíg
    • Streita
    • Svefn
    • Vinnan
    • Átraskanir/Offita
    • Börn/Unglingar
    • Fíkn
    • Kvíði
      • Árátta-Þráhyggja
    • Ofbeldi
    • Sambönd
    • Sjálfstraust
    • Tilfinningar
    • Uppeldi
      • 0-5 ára
      • 13-18
      • 6-12
    • Þunglyndi
    • ADHD
    • Áföll
    • Annað
      • Aldraðir
      • Geðsjúkdómar
      • Meðferð
      • Meðvirkni
      • nám
  • Hafðu samband
Heim Átraskanir/Offita

Viðtal – Matvæli, matarlyst og offita

Jón S. Karlsson eftir Jón S. Karlsson
11/09/2008
Í Átraskanir/Offita
0
0
atroskun2 - Viðtal - Matvæli, matarlyst og offita
0
Deilingar
61
SKOÐANIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Frá 116. ársþingi Ameríska sálfræðingafélagsins, í Boston 14. – 17. ágúst 2008
Um breytingar á matarræði þjóðar – Changing the Nation’s Diet
Viðtal við Dr. Kelly Brownell prófessor í sálfræði og faraldursfræði við Yale University og formann The Rudd Center for Food Policy and Obesity.

Mælum með

Örfá en býsna algeng dæmi um hugsana – og hegðanamynstur átröskunarsjúklinga.

Offita og átröskun almennt

Útlitsröskun (Body Dysmorphic Disorder) og Michael Jackson

Spurning: Hvað geta nýjustu rannsóknir sagt um breytingar á matarræði þjóðarinnar (USA)?

Svar: Það er ekki auðvelt að breyta matarræði heillar þjóðar. Ein ástæða er þrýstingur frá matvælaiðnaðinum á stjórnmálamenn með tilheyrandi hagsmunagæslu. En á sama tíma er almenningur að verða móttækilegri fyrir hugmyndir um breytingar, þess vegna er t.d. algengara að skólar séu að losa sig við gosdrykki. Þetta sést líka á því að í New York er verið að taka transfitu af matseðlum veitingahúsa. Þá hafa verið sett lög um upplýsandi merkingar á matvælum. Ástandið hefur verið þannig hingað til að það hefur verið erfitt að taka heilsusamlegar ákvarðanir. Breytingarnar stuðla að því að við getum séð betur hvað er hollt og hvað ekki og tekið upplýstar ákvarðanir um það sem við borðum.

Sp: Eru það sömu atriði sem leiða til slæmra ákvarðana hjá börnum og fullorðnum?

Það eru margir þættir sem stuðla að offitu en þeir eru að mestu leyti þeir sömu hjá börnum og fullorðnum. Mikil neysla á mat sem torveldar líkamanum að kunna sér magamál, t.d. ef við finnum “of seint” að við erum orðin södd. Þetta á sérstaklega við um skyndibitafæði og sykraða gosdrykki. Svo er það sorgleg staðreynd (a.m.k. í USA) að heilsusamlegur matur er dýrari en óhollur. Þess vegna verður offituvandinn oft meiri hjá lágtekjuhópum. Þar við bætist að matvælaiðnaðurinn auglýsir óhollan mat ákaft og  beinir athyglinni sérstaklega að börnum. Ef við bætist minni hreyfing þá snertir offituvandinn alla þjóðina meira og minna. Það er þess vegna ekki neitt eitt atriði sem hægt er að benda á sem orsök offitu heldur mörg atriði. Ég tel mikilvægt að vinna í þeim öllum.

Sp: Hvað með núverandi efnahagsástand er það líklegt til að það leiði til verra ástands eða betra í manneldismálum?

Verðið á matvælum hefur hækkað hratt í öllum heimshlutum. Fyrir fólk sem lifir við hungurmörk í fátækustu ríkjum heims er það skelfilegt. Sumir hafa haldið því fram að á Vesturlöndum muni hátt matvælaverð hjálpa okkur í baráttunni við offituna af þeirri augljósu ástæðu að við getum ekki keypt eins mikið af mat. Ég held að það leiði líka til þess að verri efnahagur leiði til þess að fleiri kaupi ódýrari mat sem gjarnan eru unnar matvörur sem oftast eru mjög orkuríkar. Þess vegna held ég að þetta muni auka offituvandann frekar en að draga úr honum.

Sp: Hvað geta sálfræðingar gert til að snúa þessari þróun við?

Ef við lítum á vandann sem stórt dæmi eða jöfnu, þá geta sálfræðingar lagt sitthvað af mörkum við hluta af lausninni. Til dæmis eru nýlegar rannsóknaniðurstöður sem gefa til kynna að sumar tegundir af mat valdi því að sumir ánetjist eða fái eins konar fíkn í þennan mat. Sálfræðingar geta lagt fram niðurstöður sem hjálpa til við að skilja líffræði og sálfræði matar og fíknar. Annað svið sem sálfræðingar hafa rannsakað er áhrif af markaðssetningu á matvælum. Það er gríðarleg auglýsingastarfsemi í gangi, sem beinist sérstaklega að börnum, næstum öll kringum matvæli sem almennt er talið skynsamlegt að fólk borði minna af. Sálfræðingar eru í góðri aðstöðu til að komast að orsakasamhengi milli markaðssetningar og matarræðis barna og þar með samhengi milli matarræðis og heilsu.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild á:

http://www.apa.org/convention08/diet-change.html

JSK þýddi

 

  • Sérfræðingur
  • Hafa samband
67725 1464561062499 3497241 n - Viðtal - Matvæli, matarlyst og offita
Jón S. Karlsson
Jón Sigurður Karlsson er sérfræðingur í kliniskri sálfræði. Hann hefur fjölbreytta reynslu innan og utan opinbera heilbrigðiskerfisins. Greiningar eru sérsvið hans í starfi persona.is og líka þekking á því hvað er viðeigandi að gera allt eftir útkomunni úr greiningarferlinu. ADHD greiningar eru flestar. Víðtækt MMPI persónuleikapróf og ýmis próf á styrkleikum og veikleikum. Jón er einnig með víðtæka reynslu af vinnumarkaðsmálum, starfsendurhæfingu, EES-samstarfi o.fl. Hann hefur líka sótt sér þekkingu á sviði mannauðsmála, stjórnun, markþjálfunar o.fl.
www.persona.is
jon@persona.demo-site.is
loading - Viðtal - Matvæli, matarlyst og offita
Skilaboðin hafa verið send!!
×
67725 1464561062499 3497241 n - Viðtal - Matvæli, matarlyst og offita
Jón S. Karlsson
Jón Sigurður Karlsson er sérfræðingur í kliniskri sálfræði. Hann hefur fjölbreytta reynslu innan og utan opinbera heilbrigðiskerfisins. Greiningar eru sérsvið hans í starfi persona.is og líka þekking á því hvað er viðeigandi að gera allt eftir útkomunni úr greiningarferlinu. ADHD greiningar eru flestar. Víðtækt MMPI persónuleikapróf og ýmis próf á styrkleikum og veikleikum. Jón er einnig með víðtæka reynslu af vinnumarkaðsmálum, starfsendurhæfingu, EES-samstarfi o.fl. Hann hefur líka sótt sér þekkingu á sviði mannauðsmála, stjórnun, markþjálfunar o.fl.
www.persona.is
jon@persona.demo-site.is
Latest Posts
  • psychopath 1521669470 150x150 - Viðtal - Matvæli, matarlyst og offita
  • e835b00a29f6043ecd0b470de7444e90fe76e7d718b717489df4c0 640 money 150x150 - Viðtal - Matvæli, matarlyst og offita
  • work4 150x150 - Viðtal - Matvæli, matarlyst og offita
  • no money 2070384 150 credit crisis 150x84 - Viðtal - Matvæli, matarlyst og offita
Tags: mataræðioffita

TengtGrein

belly 2354 150 weight 1 - Viðtal - Matvæli, matarlyst og offita

Örfá en býsna algeng dæmi um hugsana – og hegðanamynstur átröskunarsjúklinga.

09/04/2009
overweight 3018731 150 overweight - Viðtal - Matvæli, matarlyst og offita

Offita og átröskun almennt

07/01/2009

Útlitsröskun (Body Dysmorphic Disorder) og Michael Jackson

Anorexia, meðferð og batahorfur

Fylgikvillar offitu

Mataræði

Leita

Engar niðurstöður
SKoða allar niðurstöður

Nýlegar greinar

  • Ástarsambönd
  • Sjálfskoðun
  • Mikil Kóffínneysla hefur bein áhrif á að auka líkur á kvíða og streituviðbrögðum
  • Geðklofi
  • Siðræn sjónskerðing og siðblinda (vor 2011)

Nýlegar athugasemdir

    Greinasafn

    Flokkar

    Tækni

    • Nýskráning
    • Innskráning
    • Entries feed
    • Comments feed
    • WordPress.org

    Persona.is

    Hefur sinnt geðheilbrigði Íslendinga í 20 ár

    Skoðaðu betur

    • Um Persóna
    • Lesa grein
    • Panta Tíma
    • Hafðu samband
    Menu
    • Um Persóna
    • Lesa grein
    • Panta Tíma
    • Hafðu samband

    Leita á Persona.is

    Um Persona.is

    Persona.is er með greinarsafn sálfræðilegra greina og prófa. AUk þess er Persona.is hluti af Sálfræðistofu Persona.is Þórunnartúni 6

    Staðsetning

    Facebook-f Facebook-messenger

    © 2020 Allur réttur áskilin. Vefur hannaður af Birni Harðarsyni

    This website uses cookies. By continuing to use this website you are giving consent to cookies being used. Visit our Privacy and Cookie Policy.