Facebook Facebook-messenger Search
Persona.is
  • Meðferðaraðilar
    • Björn Harðarson
    • Páll Einarsson
    • Eyjolfur Örn Jónsson
    • Davíð Vikarsson
    • Eygló Guðmundsdóttir
    • Reynar Kári reynar @ persona.is
  • Greinar
    • Persónuleikavandamál
    • Samskipti
    • Sjálfsvíg
    • Streita
    • Svefn
    • Vinnan
    • Átraskanir/Offita
    • Börn/Unglingar
    • Fíkn
    • Kvíði
      • Árátta-Þráhyggja
    • Ofbeldi
    • Sambönd
    • Sjálfstraust
    • Tilfinningar
    • Uppeldi
      • 0-5 ára
      • 13-18
      • 6-12
    • Þunglyndi
    • ADHD
    • Áföll
    • Annað
      • Aldraðir
      • Geðsjúkdómar
      • Meðferð
      • Meðvirkni
      • nám
  • Hafðu samband
Menu
  • Meðferðaraðilar
    • Björn Harðarson
    • Páll Einarsson
    • Eyjolfur Örn Jónsson
    • Davíð Vikarsson
    • Eygló Guðmundsdóttir
    • Reynar Kári reynar @ persona.is
  • Greinar
    • Persónuleikavandamál
    • Samskipti
    • Sjálfsvíg
    • Streita
    • Svefn
    • Vinnan
    • Átraskanir/Offita
    • Börn/Unglingar
    • Fíkn
    • Kvíði
      • Árátta-Þráhyggja
    • Ofbeldi
    • Sambönd
    • Sjálfstraust
    • Tilfinningar
    • Uppeldi
      • 0-5 ára
      • 13-18
      • 6-12
    • Þunglyndi
    • ADHD
    • Áföll
    • Annað
      • Aldraðir
      • Geðsjúkdómar
      • Meðferð
      • Meðvirkni
      • nám
  • Hafðu samband
Heim Annað Svefn

Kæfisvefn

Persona.is eftir Persona.is
04/10/2004
Í Svefn
0
0
sleep mask 1521752781 - Kæfisvefn

kellepics / Pixabay

0
Deilingar
36
SKOÐANIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

 Síðustu tvo áratugi hefur verið vitað að til eru öndunartruflanir sem eingöngu koma fram í svefni. Langalgengasta truflunin er öndunarhlé sem varir í tíu sekúndur eða lengur. Ef slík öndunarhlé eru fleiri en 30 yfir nóttina og þeim fylgir óvær svefn, háværar hrotur og dagsyfja er ástandið kallað kæfisvefn (sleep apnea syndrome).

Mælum með

Svefntruflanir og svefnsjúkdómar

Svefnleysi – hvað er til ráða?

Svefntruflanir og slæmar svefnvenjur

1. Hve algengur er kæfisvefn ?

Kæfisvefn er meðal algengari langvinnra sjúkdóma hjá miðaldra fólki. Fjórir af hundrað körlum og tvær af hundrað konum greinast með kæfisvefn. Mun fleiri eru þó með einkenni kæfisvefns, s.s. háværar hrotur, en íslenskar faraldsfræðirannsóknir benda til þess að einn karl af sjö hrjóti hávært allar nætur og ein kona af hverjum tíu.

2. Hverjir fá helst kæfisvefn ?

Það eru fyrst og fremst þrengsli innan efri loftvegs ( frá nefi að barka ) sem stuðla að kæfisvefni. Oft er um að ræða skekkju á nefi, sepamyndun, stóra hálskirtla, eða smáa höku til viðbótar offitu, en tveir af hverjum þremur kæfisvefnssjúklingum eru of þungir.

3. Eru öndunarhléin til staðar allar nætur ?

Hjá þeim sem eru með talsverð einkenni kæfisvefns eru verulegar öndunartruflanir fyrir hendi allar nætur. Undir vissum kringumstæðum fylgja þó mun meiri öndunartruflanir í svefni, eða eftir áfengisneyslu, notkun vissra svefnlyfja, og langvarandi vansvefn. Jafnframt geta tímabundnar aðstæður, s.s. ofnæmiskvef í nefi, stuðlað að kæfisvefni.

4. Geta börn líka þjáðst af kæfisvefni ?

Já, það hefur komið í ljós að öndunartruflanir eru líka hjá börnum. Rannsókn meðal sex mánaðar til sex ára barna í Garðabæ sýndi það að minnsta kosti 2,4% þeirra voru með öndunartruflanir í svefni. Börn með kæfisvefn eru yfirleitt ekki of þung, heldur oftast með stóra háls- og / eða nefkirtla. Börn sem ekki hvílast vegna kæfisvefns eru pirruð og ergileg á daginn. Einnig veldur kæfisvefninn vanþroska, þau stækka ekki og dafna eins og heilbrigð börn.

5. Hverjar eru afleiðingar kæfisvefns hjá fullorðnum ?

Þær ráðast mjög af því á hvaða stigi sjúkdómurinn er. Ef kæfisvefninn er vægur (aðeins 30-50 stutt öndunarstopp) þá eru afleiðingarnar fyrst og fremst þreyta og syfja að deginum. Þeim mun fleiri sem öndunarhléin eru, þeim mun víðtækari afleiðingar má gera ráð fyrir að þau hafi á líkamsstarfsemina að öðru leyti. Háþrýstingur og sjúkdómar í hjarta og æðakerfi eru þess vegna mun algengari meðal þeirra sem eru með alvarlegan kæfisvefn.

6. Hverjar eru lífshorfur kæfisvefnssjúklinga?

Ef kæfisvefn er á háu stigi eru slíkir sjúklingar í margfalt meiri hættu að lenda í umferðar- eða vinnuslysum. Einnig er meðal þeirra aukin dánartíðni, fyrst og fremst vegna hjarta- og æðasjúkdóma.

7. Í hverju er meðferð kæfisvefns fólgin ?

Áður en ákvörðun er tekin um meðferð er nauðsynlegt að viðkomandi fari í rannsókn þar sem fylgst er með öndun og súrefnismettun yfir heila nótt. Á grundvelli þess má sjá á hvaða stigi sjúkdómurinn er og ráðleggja meðferð í samræmi við það, ef á þarf að halda.

8. Eru þá engin sameiginleg meðferðarráð fyrir sjúklinga með kæfisvefn ?

Jú. Almenn þekking á eðli og einkennum kæfisvefns er nauðsynleg. Jafnframt að draga lærdóm af því að áfengisneysla, notkun svefnlyfja og vansvefn geta aukið mjög kæfisvefnseinkennin. Einnig er nauðsynlegt að halda líkamsþyngd í skefjum ef viðkomandi hefur tilhneigingu til kæfisvefns. Margar rannsóknir benda til þess að þyngdaraukning leiði til þess að kæfisvefn versni mikið. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að samhliða megrun ná margir kæfisvefnssjúklingar talsverðum bata.

9. Er ástæða til að leita álits háls- nef og eyrnalæknis ?

Já, ef um talsverðan kæfisvefn er að ræða getur ástæðan verið þrenging innan efra loftvegs, svo sem nefskekkja eða sepamyndun í nefi. Meðferð hjá háls- nef- og eyrnalækni getur leitt til varanlegs árangurs.

10. Hver er algengasta meðferðin við alvarlegum kæfisvefni ?

Oftast er þá beitt einfaldri öndunarvél þar sem með aðstoð loftblásara er aukinn þrýstingur á innöndunarlofti. Sjúklingur sefur  þá með grímu tengda við öndunarvél.  Áður en sjúklingur sofnar er það síðasta sem hann gerir að setja á sig slíkan búnað sem hann fjarlægir svo strax að morgni þegar hann vaknar. Með aðstoð loftblástursins er komið í veg fyrir öndunarhlé, sjúklingurinn sefur eðlilega, hvílist og finnur ekki fyrir dagsyfju. Fylgikvillar kæfisvefns, s.s. háþrýstingur, verða oft viðráðanlegri.

11. Er öndunarvélameðferð algeng?

Já, á áttundahundrað einstaklingar eru með slíkan öndunarbúnað þegar þeir sofa. Meðferðin er hafin og henni er fylgt eftir á vegum lungnadeildar Landspítala, Vífilsstöðum.

12. Hvenær er ástæða til að leita læknis vegna gruns um kæfisvefn ?

Fullorðnir með sögu um háværar hrotur, öndunarhlé, óværan svefn og syfju eða þreytu að deginum ættu að ráðfæra sig við lækni vegna möguleika á kæfisvefni. Einkum ef þeir eru með háþrýsting eða hjarta- og æðasjúkdóma. Jafnvel þó viðkomandi viti lítið um hrotur (sefur einn) en er með veruleg einkenni syfju að deginum, þá er full ástæða til að ráðfæra sig við lækni um hvort kæfisvefn eða eitthvað annað geti verið að trufla svefninn og valda ónógri hvíld og dagsyfju.

13. En hvað með þá sem „bara“ hrjóta ?

Ef eingöngu er vitað um háværar hrotur, ekki er tekið eftir öndunarstoppum, engin óþægindi vegna óeðlilegrar dagsyfju og hjartasjúkdómar ekki til staðar, þá er tæpast ástæða til næturrannsóknar af læknisfræðilegum ástæðum. Stundum geta þó þau félagslegu óþægindi sem fylgja háværum hrotum valdið því að viðkomandi vill ráðfæra sig við lækni um leiðir til þess að draga úr umhverfistruflun vegna hrota.  

Þórarinn Gíslason, læknir

Tags: kæfisvefnsvefn

TengtGrein

svefn6 - Kæfisvefn

Svefntruflanir og svefnsjúkdómar

25/01/2005
sleep problem 1521751996 - Kæfisvefn

Svefnleysi – hvað er til ráða?

06/10/2004

Svefntruflanir og slæmar svefnvenjur

Hvenær er dagsyfja óeðlileg

Börn og svefn

Leita

Engar niðurstöður
SKoða allar niðurstöður

Nýlegar greinar

  • Ástarsambönd
  • Sjálfskoðun
  • Mikil Kóffínneysla hefur bein áhrif á að auka líkur á kvíða og streituviðbrögðum
  • Geðklofi
  • Siðræn sjónskerðing og siðblinda (vor 2011)

Nýlegar athugasemdir

    Greinasafn

    Flokkar

    Tækni

    • Nýskráning
    • Innskráning
    • Entries feed
    • Comments feed
    • WordPress.org

    Persona.is

    Hefur sinnt geðheilbrigði Íslendinga í 20 ár

    Skoðaðu betur

    • Um Persóna
    • Lesa grein
    • Panta Tíma
    • Hafðu samband
    Menu
    • Um Persóna
    • Lesa grein
    • Panta Tíma
    • Hafðu samband

    Leita á Persona.is

    Um Persona.is

    Persona.is er með greinarsafn sálfræðilegra greina og prófa. AUk þess er Persona.is hluti af Sálfræðistofu Persona.is Þórunnartúni 6

    Staðsetning

    Facebook-f Facebook-messenger

    © 2020 Allur réttur áskilin. Vefur hannaður af Birni Harðarsyni

    This website uses cookies. By continuing to use this website you are giving consent to cookies being used. Visit our Privacy and Cookie Policy.