Facebook Facebook-messenger Search
Persona.is
  • Meðferðaraðilar
    • Björn Harðarson
    • Páll Einarsson
    • Eyjolfur Örn Jónsson
    • Davíð Vikarsson
    • Eygló Guðmundsdóttir
    • Reynar Kári reynar @ persona.is
  • Greinar
    • Persónuleikavandamál
    • Samskipti
    • Sjálfsvíg
    • Streita
    • Svefn
    • Vinnan
    • Átraskanir/Offita
    • Börn/Unglingar
    • Fíkn
    • Kvíði
      • Árátta-Þráhyggja
    • Ofbeldi
    • Sambönd
    • Sjálfstraust
    • Tilfinningar
    • Uppeldi
      • 0-5 ára
      • 13-18
      • 6-12
    • Þunglyndi
    • ADHD
    • Áföll
    • Annað
      • Aldraðir
      • Geðsjúkdómar
      • Meðferð
      • Meðvirkni
      • nám
  • Hafðu samband
Menu
  • Meðferðaraðilar
    • Björn Harðarson
    • Páll Einarsson
    • Eyjolfur Örn Jónsson
    • Davíð Vikarsson
    • Eygló Guðmundsdóttir
    • Reynar Kári reynar @ persona.is
  • Greinar
    • Persónuleikavandamál
    • Samskipti
    • Sjálfsvíg
    • Streita
    • Svefn
    • Vinnan
    • Átraskanir/Offita
    • Börn/Unglingar
    • Fíkn
    • Kvíði
      • Árátta-Þráhyggja
    • Ofbeldi
    • Sambönd
    • Sjálfstraust
    • Tilfinningar
    • Uppeldi
      • 0-5 ára
      • 13-18
      • 6-12
    • Þunglyndi
    • ADHD
    • Áföll
    • Annað
      • Aldraðir
      • Geðsjúkdómar
      • Meðferð
      • Meðvirkni
      • nám
  • Hafðu samband
Heim Annað

Áráttukennd kaup

Persona.is eftir Persona.is
05/01/2007
Í Annað
0
0
shopping 1521747682 - Áráttukennd kaup

burhankhawaja / Pixabay

0
Deilingar
26
SKOÐANIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Áráttukennd kaup (compulsive buying) einkennast af óhóflegum, óviðráðanlegum, tímafrekum og endurteknum verlsunarferðum eða kaupum. Þessi áráttukenndu kaup hafa slæmar afleiðingar eins og fjárhagslega- og félagslega erfiðleika og sumir telja að þau séu viðbrögð við depurð, öðrum erfiðum tilfinningum eða atburðum.

Mælum með

Mikil Kóffínneysla hefur bein áhrif á að auka líkur á kvíða og streituviðbrögðum

Geðklofi

Siðræn sjónskerðing og siðblinda (vor 2011)

Undanfari áráttukenndra kaupa er yfirleitt síaukin spenna og í kjölfar kaupanna finnur viðkomandi fyrir tímabundinni vellíðan en síðan skömm og sektarkennd. Þeir sem þjást af áráttukenndum kaupum greina frá því að kaup þeirra einkennist af því að hvötin til að kaupa sé óviðráðanleg, kaupin séu endurtekin og vörurnar ónauðsynlegar. Hugsanir um kaup ryðji sér leið inn í hugann og allar tilraunir til að stjórna kaupum og eyðslu mistakist. Þá greinir fólk einnig frá löngum og tíðum verslunarferðum eða það reyni að forðast verslunarferðir og staði þar sem hægt er að versla. Þessar tilraunir mistakast þó einnig og á endanum missir fólk algjörlega stjórn á kaupum sínum. Einnig eru afleiðingar kaupanna almennt slæmar, eins og áhyggjur og kvíði, árekstrar við maka, kreditkorta- og yfirdráttarskuldir og aðrir fjárhagslegir erfiðleikar.
Áráttukennd kaup hafa ekki enn fengið eigin greiningarviðmið í greiningarviðmiðum amerísku geðlæknasamtakanna, APA, og eru flokkuð í sama flokk og aðrar hvatvísiraskanir sem ekki eru öðruvísi tilgreindar eins og til dæmis húðplokk og er þá kallað áráttukennd kaupröskun. Þó er viðurkennt að um alvarlegt vandamál sé um að ræða og talið er að frá 2% til allt að 8% Bandaríkjamanna eigi í vandræðum vegna áráttukenndra kaupa. Þeir sem greinast með áráttukennda kaupröskun hafa einnig oft greinst með þunglyndi, kvíðaraskanir, átraskanir og áfengis- eða eiturlyfjafíkn á sama tíma eða einhvern tíma á ævinni.
Áráttukennd kaup byrja yfirleitt að gera vart við sig á aldrinum18 ára til 30 ára og verða oftast að meiriháttar vandamáli á tímabilinu 31 ára til 39 ára. Flestir sem glíma við áráttukennd kaup eru konur á fertugsaldri með lág til meðalhá laun og töluverðar skuldir. Vörurnar sem oftast eru keyptar eru tískuvörur eins og föt, skór, skartgripir og snyrtivörur og margt af því er aldrei eða sjaldan notað.
Tengsl áráttukenndrar kaupröskunar við alvarlegt þunglyndi eru sterk en sambandið er flókið. Það er mögulegt að þunglyndi orsakist af félagslegum-, fjárhagslegum- og persónulegum vandamálum sem fylgja áráttukenndum kaupum. Hitt er líka mögulegt að áráttukennd kaup þjóni þeim tilgangi að draga úr þunglyndi og öðrum erfiðum tilfinningum með þeirri tímabundnu sælu sem fylgja kaupunum. Þriðja skýringin er sú að þunglyndi leiði til bágrar sjálfsmyndar og neikvæðs hugsunarháttar sem orsaki svo áráttukennd kaup sem leið til að bæta sjálfsmynd og auka ánægju.
Það er margt á huldu um uppruna áráttukenndrar kaupröskunar en margt bendir til að skyldleikar séu með þessari röskun og þráhyggju- og árátturöskunar. Sumir telja líka að áráttukennd kaupröskun tengist sterklega efnishyggju, það er að segja þeirri tilhneigingu að leggja mikið upp úr efnislegum hlutum eins og fötum og skartgripum. Þeir sem aðhyllast efnishyggju muni þá hneigjast til að kaupa sér hluti þegar þeim líður illa sem tilraun til að auka ánægju, draga úr vanlíðan og til lífsfyllingar.
Þegar kemur að meðferð við áráttukenndri kaupröskun eru fáar rannsóknir til sem skera úr um það hvers konar meðferð er gagnleg við áráttukenndri kaupröskun en þó hafa lyfjameðferð og hugræn atferlismeðferð reynst hjálpleg og gefa von um að hægt sé að hjálpa fólki með áráttukennda kaupröskun.

Eggert S. Birgisson, sálfræðingur

Tags: árátta og þráhyggja

TengtGrein

eb36b1092cf3003ecd0b470de7444e90fe76e7d718b7174492f8c6 640 coffee e1521917208384 - Áráttukennd kaup

Mikil Kóffínneysla hefur bein áhrif á að auka líkur á kvíða og streituviðbrögðum

15/07/2015
eb31b90e2bf3033ecd0b470de7444e90fe76e7d718b7174996f4c4 640 crazy e1521740666334 - Áráttukennd kaup

Geðklofi

06/02/2013

Siðræn sjónskerðing og siðblinda (vor 2011)

Fjármálalæsi eftir hrun

Vinnufíkn

Krepputal II (jan. 2009)

Leita

Engar niðurstöður
SKoða allar niðurstöður

Nýlegar greinar

  • Ástarsambönd
  • Sjálfskoðun
  • Mikil Kóffínneysla hefur bein áhrif á að auka líkur á kvíða og streituviðbrögðum
  • Geðklofi
  • Siðræn sjónskerðing og siðblinda (vor 2011)

Nýlegar athugasemdir

    Greinasafn

    Flokkar

    Tækni

    • Nýskráning
    • Innskráning
    • Entries feed
    • Comments feed
    • WordPress.org

    Persona.is

    Hefur sinnt geðheilbrigði Íslendinga í 20 ár

    Skoðaðu betur

    • Um Persóna
    • Lesa grein
    • Panta Tíma
    • Hafðu samband
    Menu
    • Um Persóna
    • Lesa grein
    • Panta Tíma
    • Hafðu samband

    Leita á Persona.is

    Um Persona.is

    Persona.is er með greinarsafn sálfræðilegra greina og prófa. AUk þess er Persona.is hluti af Sálfræðistofu Persona.is Þórunnartúni 6

    Staðsetning

    Facebook-f Facebook-messenger

    © 2020 Allur réttur áskilin. Vefur hannaður af Birni Harðarsyni

    This website uses cookies. By continuing to use this website you are giving consent to cookies being used. Visit our Privacy and Cookie Policy.