Facebook Facebook-messenger Search
Persona.is
  • Meðferðaraðilar
    • Björn Harðarson
    • Páll Einarsson
    • Eyjolfur Örn Jónsson
    • Davíð Vikarsson
    • Eygló Guðmundsdóttir
    • Reynar Kári reynar @ persona.is
  • Greinar
    • Persónuleikavandamál
    • Samskipti
    • Sjálfsvíg
    • Streita
    • Svefn
    • Vinnan
    • Átraskanir/Offita
    • Börn/Unglingar
    • Fíkn
    • Kvíði
      • Árátta-Þráhyggja
    • Ofbeldi
    • Sambönd
    • Sjálfstraust
    • Tilfinningar
    • Uppeldi
      • 0-5 ára
      • 13-18
      • 6-12
    • Þunglyndi
    • ADHD
    • Áföll
    • Annað
      • Aldraðir
      • Geðsjúkdómar
      • Meðferð
      • Meðvirkni
      • nám
  • Hafðu samband
Menu
  • Meðferðaraðilar
    • Björn Harðarson
    • Páll Einarsson
    • Eyjolfur Örn Jónsson
    • Davíð Vikarsson
    • Eygló Guðmundsdóttir
    • Reynar Kári reynar @ persona.is
  • Greinar
    • Persónuleikavandamál
    • Samskipti
    • Sjálfsvíg
    • Streita
    • Svefn
    • Vinnan
    • Átraskanir/Offita
    • Börn/Unglingar
    • Fíkn
    • Kvíði
      • Árátta-Þráhyggja
    • Ofbeldi
    • Sambönd
    • Sjálfstraust
    • Tilfinningar
    • Uppeldi
      • 0-5 ára
      • 13-18
      • 6-12
    • Þunglyndi
    • ADHD
    • Áföll
    • Annað
      • Aldraðir
      • Geðsjúkdómar
      • Meðferð
      • Meðvirkni
      • nám
  • Hafðu samband
Heim Átraskanir/Offita

Anorexia, meðferð og batahorfur

Eyjólfur Örn Jónsson eftir Eyjólfur Örn Jónsson
08/11/2006
Í Átraskanir/Offita
0
0
anorexia 1521748324 - Anorexia, meðferð og batahorfur

geralt / Pixabay

0
Deilingar
41
SKOÐANIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Ein algengasta tegunda átröskunar er svokallað lystarstol eða anorexia. Íslenska nafnið er í raun rangnefni þar sem röskunin einkennist ekki af skorti á lyst.  Einstaklingur sem þjáist af anorexiu minnkar magn þess sem hann borðar og hættir jafnvel að borða í því skyni að forðast þyngdaraukningu. 

Mælum með

Örfá en býsna algeng dæmi um hugsana – og hegðanamynstur átröskunarsjúklinga.

Offita og átröskun almennt

Viðtal – Matvæli, matarlyst og offita

Þessir einstaklingar eru ofurseldir hugsunum um þyngdartap og líður best þegar þeim finnst þeim hafa tekist að tryggja áframhaldandi þyngdartap.  Þetta þýðir í raun að einstaklingar með anorexiu leggja allt í sölurnar til að tryggja að þeir léttist og þeim hættir til að missa stjórn á allri hegðun sem snýr að þyngdartapi. 

Við greiningu anorexiu eru tveir undirflokkar sem koma til greina.  Sá fyrri einkennist af því að viðkomandi sveltir sig einvörðungu en hinn seinni einkennist af því að samhliða sveltinu hefur einstaklingurinn flest einkenni lotugræðgi eða búlimíu, tekur átköst og framkallar uppköst.  Greining anorexiu fer fram hjá sálfræðingi eða geðlækni og er þá stuðst við viðurkennd greiningarviðmið.  Til þess að greinast með Anorexiu þarf líkamsþyngd einstaklings fyrst og fremst að vera innan við 85% af kjörþyngd hans en auk þessa þarf einstaklingurinn að vera upptekinn af áframhaldandi þyngdartapi og blindur á alvarleika stöðu sinnar.  Að lokum er almennt skilyrði fyrir greiningu, að ef kona er á barneignaraldri þá hafi hún ekki haft reglubundnar blæðingar í þrjá samfellda tíðarhringi.

Algengast er að Anorexia greinist fyrst á aldursbilinu 14-18 ára og langoftast eru það stúlkur sem greinast og eru stúlkur í raun 90% þeirra sem greinast.  Vegna þess að Anorexia greinist oftast á unglingsárunum, er algengt að hún teljist unglingaröskun.  Líkt og með aðrar geðraskanir er algengt að einstaklingar þjáist af öðrum vandamálum samhliða Anorexiunni.  Algengustu fylgikvillar Anorexiu eru: lotugræðgi (bulimia), þunglyndi, kvíði, árátta-þráhyggja og félagsfælni.

Anorexia er flókið vandamál og getur verið misalvarlegt.  Almennt er talið að batahorfur einstaklinga tengist líkamsþyngd þeirra, aldri og tímann sem þeir hafa þjáðst af vandanum. Með öðrum orðum verður ólíklegra að einstaklingur nái bata ef hann er mjög léttur, gamall eða hefur þjáðst af Anorexiu um langt skeið.  Ef einstaklingurinn þjáist af öðrum vandamálum samhliða Anorexiunni minnka einnig batahorfurnar.  Tiltölulega fáar rannsóknir hafa verið framkvæmdar á batahorfum einstaklinga með Anorexiu en þær sem framkvæmdar hafa verið sýna að Anorexia er mjög flókið og óútreiknanlegt vandamál.  Stundum getur Anorexia verið einföld og auðlæknanleg en í öðrum tilfellum getur hún verið langvinn og óviðráðanleg.  Almennt er það þó álit sérfræðinga að vegna þess hve erfiður vandinn er viðureignar þá beri að reikna með því að meðferð hans taki langan tíma. 

Mjög erfitt getur verið að vinna með fólki sem þjáist af Anorexiu þar sem það er yfirleitt í mikilli afneitun og því verður samband þess við meðferðaraðilann mun mikilvægara.  Mikilvægt er að einstaklingurinn myndi traust samband við þann sem hyggst hjálpa honum og treysti honum fullkomlega.  Sem dæmi um hve erfitt getur verið að vinna með einstaklingum með Anorexiu, líta þeir oft á þyngdartapið sem lausn vandans í stað þess að sjá það sem orsökina.  Markmið meðferðar við Anorexiu er að koma aftur á eðlilegum matarvenjum og hjálpa fólki að ná aftur eðlilegri líkamsþyngd.  Bestu meðferðarúrræðin eru almennt talin vera þau sem taka á sem flestum þáttum vandans.  Ekki nægir fyrir úrræði að takast eingöngu á við hugsanir, hegðun eða félagslega þætti eina og sér heldur þarf gott úrræði að taka á öllum þessum þáttum. 

Mikilvægt er fyrir einstaklinga með Anorexiu og aðstandendur þeirra að fylgjast vel með og bregðast skjótt við þegar vandinn gerir vart við sig.  Því fyrr sem einstaklingur leitar sér hjálpar hjá færum fagaðila sem hann treystir, þeim mun líklegra er að hann muni ná tökum á vandanum.     


Eyjólfur Örn Jónsson
Sálfræðingur

  • Sérfræðingur
  • Hafa samband
1796700 512116508905143 140974296 n - Anorexia, meðferð og batahorfur
Eyjólfur Örn Jónsson
Eyjólfur Örn lauk meistaragráðu í sálfræði frá Háskólanum í Árósum árið 2005. Í náminu starfaði Eyjólfur með ungu fólki í Danmörku og þegar að hann kom aftur til Íslands haustið 2005 hóf hann störf á eigin stofu hjá sálfræðistofum Persona.is. Í nokkur ár sá hann einnig um að skrifa greinar fyrir Persona.is og Fréttablaðið um ýmis sálfræðitengd efni og um stutt skeið sá hann um ritstjórn Persona.is vefsins. Eyjólfur kenndi eitt ár við Kennaraháskóla Íslands um Áhættuhegðun unglinga og forvarnir og hefur á síðustu árum eftir sameiningu skólanna tekið þátt í kennslu um sama efni við Háskóla Íslands. Frá útskrift hefur Eyjólfur flutt fjölda fyrirlestra um land allt um hin ýmsu efni. Fljótlega eftir útskrift fór Eyjólfur að sérhæfa sig í að vinna með vandamál er tengdust internetinu með einum eða öðrum hætti. Samhliða því hóf Eyjólfur að flytja fyrirlestra um ofnotkun netsins fyrir foreldra, börn og fagfólk til þess að vekja athygli á ört vaxandi vandamáli.
www.persona.is
eyjolfur@persona.demo-site.is
loading - Anorexia, meðferð og batahorfur
Skilaboðin hafa verið send!
×
1796700 512116508905143 140974296 n - Anorexia, meðferð og batahorfur
Eyjólfur Örn Jónsson
Eyjólfur Örn lauk meistaragráðu í sálfræði frá Háskólanum í Árósum árið 2005. Í náminu starfaði Eyjólfur með ungu fólki í Danmörku og þegar að hann kom aftur til Íslands haustið 2005 hóf hann störf á eigin stofu hjá sálfræðistofum Persona.is. Í nokkur ár sá hann einnig um að skrifa greinar fyrir Persona.is og Fréttablaðið um ýmis sálfræðitengd efni og um stutt skeið sá hann um ritstjórn Persona.is vefsins. Eyjólfur kenndi eitt ár við Kennaraháskóla Íslands um Áhættuhegðun unglinga og forvarnir og hefur á síðustu árum eftir sameiningu skólanna tekið þátt í kennslu um sama efni við Háskóla Íslands. Frá útskrift hefur Eyjólfur flutt fjölda fyrirlestra um land allt um hin ýmsu efni. Fljótlega eftir útskrift fór Eyjólfur að sérhæfa sig í að vinna með vandamál er tengdust internetinu með einum eða öðrum hætti. Samhliða því hóf Eyjólfur að flytja fyrirlestra um ofnotkun netsins fyrir foreldra, börn og fagfólk til þess að vekja athygli á ört vaxandi vandamáli.
www.persona.is
eyjolfur@persona.demo-site.is
Latest Posts
  • anorexia 1521748324 150x150 - Anorexia, meðferð og batahorfur
  • internet addiction 1521748438 150x150 - Anorexia, meðferð og batahorfur
  • shy 1521748553 150x150 - Anorexia, meðferð og batahorfur
  • ptsd 1521748704 150x150 - Anorexia, meðferð og batahorfur
Tags: anorexiaátraskanir

TengtGrein

belly 2354 150 weight 1 - Anorexia, meðferð og batahorfur

Örfá en býsna algeng dæmi um hugsana – og hegðanamynstur átröskunarsjúklinga.

09/04/2009
overweight 3018731 150 overweight - Anorexia, meðferð og batahorfur

Offita og átröskun almennt

07/01/2009

Viðtal – Matvæli, matarlyst og offita

Útlitsröskun (Body Dysmorphic Disorder) og Michael Jackson

Fylgikvillar offitu

Mataræði

Leita

Engar niðurstöður
SKoða allar niðurstöður

Nýlegar greinar

  • Ástarsambönd
  • Sjálfskoðun
  • Mikil Kóffínneysla hefur bein áhrif á að auka líkur á kvíða og streituviðbrögðum
  • Geðklofi
  • Siðræn sjónskerðing og siðblinda (vor 2011)

Nýlegar athugasemdir

    Greinasafn

    Flokkar

    Tækni

    • Nýskráning
    • Innskráning
    • Entries feed
    • Comments feed
    • WordPress.org

    Persona.is

    Hefur sinnt geðheilbrigði Íslendinga í 20 ár

    Skoðaðu betur

    • Um Persóna
    • Lesa grein
    • Panta Tíma
    • Hafðu samband
    Menu
    • Um Persóna
    • Lesa grein
    • Panta Tíma
    • Hafðu samband

    Leita á Persona.is

    Um Persona.is

    Persona.is er með greinarsafn sálfræðilegra greina og prófa. AUk þess er Persona.is hluti af Sálfræðistofu Persona.is Þórunnartúni 6

    Staðsetning

    Facebook-f Facebook-messenger

    © 2020 Allur réttur áskilin. Vefur hannaður af Birni Harðarsyni

    This website uses cookies. By continuing to use this website you are giving consent to cookies being used. Visit our Privacy and Cookie Policy.