Facebook Facebook-messenger Search
Persona.is
  • Meðferðaraðilar
    • Björn Harðarson
    • Páll Einarsson
    • Eyjolfur Örn Jónsson
    • Davíð Vikarsson
    • Eygló Guðmundsdóttir
    • Reynar Kári reynar @ persona.is
  • Greinar
    • Persónuleikavandamál
    • Samskipti
    • Sjálfsvíg
    • Streita
    • Svefn
    • Vinnan
    • Átraskanir/Offita
    • Börn/Unglingar
    • Fíkn
    • Kvíði
      • Árátta-Þráhyggja
    • Ofbeldi
    • Sambönd
    • Sjálfstraust
    • Tilfinningar
    • Uppeldi
      • 0-5 ára
      • 13-18
      • 6-12
    • Þunglyndi
    • ADHD
    • Áföll
    • Annað
      • Aldraðir
      • Geðsjúkdómar
      • Meðferð
      • Meðvirkni
      • nám
  • Hafðu samband
Menu
  • Meðferðaraðilar
    • Björn Harðarson
    • Páll Einarsson
    • Eyjolfur Örn Jónsson
    • Davíð Vikarsson
    • Eygló Guðmundsdóttir
    • Reynar Kári reynar @ persona.is
  • Greinar
    • Persónuleikavandamál
    • Samskipti
    • Sjálfsvíg
    • Streita
    • Svefn
    • Vinnan
    • Átraskanir/Offita
    • Börn/Unglingar
    • Fíkn
    • Kvíði
      • Árátta-Þráhyggja
    • Ofbeldi
    • Sambönd
    • Sjálfstraust
    • Tilfinningar
    • Uppeldi
      • 0-5 ára
      • 13-18
      • 6-12
    • Þunglyndi
    • ADHD
    • Áföll
    • Annað
      • Aldraðir
      • Geðsjúkdómar
      • Meðferð
      • Meðvirkni
      • nám
  • Hafðu samband
Heim Annað Streita

Streitustjórnun á erfiðum tímum

Jón S. Karlsson eftir Jón S. Karlsson
11/08/2008
Í Streita
0
0
stress1 - Streitustjórnun á erfiðum tímum
0
Deilingar
119
SKOÐANIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Rannsóknir í USA sýna að fólk þar í landi hugsar oft um peninga. Það virðist vera sem peningar (eða skortur á þeim) og vinnan sé í efsta sæti áhyggjuefna hjá næstum því 75% þeirra sem tóku þátt í streitu-könnun Ameríska sálfræðingafélagsins. (Stress in America 2007 Survey).

Mælum með

Mikil Kóffínneysla hefur bein áhrif á að auka líkur á kvíða og streituviðbrögðum

Kulnun í starfi

Vinnutengd streita

Ef við bætum svo við fyrirsögnum dagblaða ásamt útvarps- og sjónvarpsfréttum hér á landi og í Ameríku sjáum við merki um kreppu. Við slíkar aðstæður eru margir sem leita leiða til þess að koma sér út úr fjárhagslegum þrengingum. Niðursveiflan byrjaði með útlánakreppu í USA snemma árs 2008 sem leiddi fljótt til skorts á fjármagni á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, lánastofnanir höfðu lánað of mikið til aðila sem eftir á að hyggja voru ekki líklegir til að standa undir greiðslum. Þegar fasteignaverð lækkaði var virði eignanna orðið minna en lánin sem miðuðu við að það ríkti góðæri á fasteignamarkaði og vinnumarkaði. Sambærilegir atburðir árið 2007 á Íslandi voru lækkun á hlutbréfamarkaði, fyrirsjáanleg lok stórframkvæmda og lækkun á fasteignamarkaði. Þetta leiðir til þess að margir hafa áhyggjur af fjárhag sínum og framtíð.

Þeir sem fylgjast með spurn eftir sálfræðilegri meðferð í USA telja sig sjá 15-20% aukningu undanfarna þrjá mánuði (apríl-júní 2008). Hluti þeirra sem leita meðferðar finna fyrir auknum kvíða og depurð sem þeir tengja við fjárhagslega erfiðleika.

Íslendingar hugsa líka um peninga og finna líklega meira fyrir skorti á þeim vegna þess að okkur er tamt að halda að við séum ein ríkasta þjóð í heimi. Þar við bætist að undanfarin ár hefur hagsýni ekki verið í tísku, miklu frekar mikil neyslugleði og mun meiri djörfung í lántökum en víða annars staðar í hinum vestræna heimi.

Eins og flest önnur hversdagsleg streita er þessi viðbótarspenna vegna niðursveiflunnar viðráðanleg, svona hefur gerst áður og við höfum unnið okkur út úr því að þetta hefur “reddast” vonum framar hingað til. Ég er ekki að gera lítið úr tilfinningalegum viðbrögðum við efnahagslegum þrengingum, vissulega er það áfall að fara úr “bullandi góðæri” í “eðlilegt ástand”, sérstaklega ef við höfum gert ráð fyrir að það yrði framhald á uppsveiflunni sem hefur ríkt 2004-2008. Hagfræðingar höfðu gert ráð fyrir samdrætti þegar stórframkvæmdum væri lokið, þeir gerðu sér vonir um mjúka lendingu efnahagslífsins. Gengishrap krónunnar, hækkanir á olíuverði og matvælum hafa bæst við vandann þannig að vonir um mjúka lendingu virðast ekki ætla að rætast.

Hvað er til ráða: Út frá sálfræðilegum aðferðum er best að byrja á því að staldra við og hugsa, en ekki láta óttann villa okkur sýn. Það er mikilvægt að varast að “fara á taugum” eða “fara í paník” út af þessu. Það eru vissulega óvissuþættir í öllum niðursveiflum en við höfum gengið í gegnum annað eins áður.

  1. Staldrið við og látið ekki óttann villa ykkur sýn. Það eru vissulega margar neikvæðar fréttir í blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Takið eftir því sem er að gerast kringum ykkur, en forðist að láta hrapspárnar ná tökum á ykkur, það eru líka tækifæri í kreppum. Okkur getur hætt til að magna upp svartsýni við neikvæðar spár, sem aftur setur af stað vítahring kvíða og hefur neikvæð áhrif á dómgreind okkar og hæfni til að taka ákvarðanir. Forðist bæði fljótfærni og óvirkni. Við þessar aðstæður er meiri hætta á að bregðast of ákaft við, ganga út frá því að allt sé á niðurleið, draga of miklar ályktanir af atburðunum.
  2. Finnið það sem veldur mestum áhyggjum og streitu og gerið áætlanir. Skoðið fjárhag ykkar vandlega, eignir og skuldir, hvað þarf að setja í forgang. Setjið á blað það sem fjölskyldan getur dregið úr kostnaði, hvað er það sem þið ættuð auðveldast með að vera án. Finnið leiðir til að halda betur utan um fjármálin, er skynsamlegt að sjá um þetta sjálf – og nota heimabankann- frekar en að láta bankann sjá um allar greiðslur. Er hugsanlegt að umsjón bankans hafi gert það að verkum að þið hafið misst tilfinningu fyrir fjárhagnum? Það er góð líka hugmynd að skoða www.spara.is .  Þegar búið er að gera áætlanir er mikilvægt að hrinda því í framkvæmd og endurskoða reglulega, ekki láta þetta renna út í sandinn eftir efnilega byrjun. Enda þótt það geti valdið kvíða til skamms tíma að sjá stöðuna á blaði þá dregur það úr kvíðanum til lengri tíma að taka á málunum.
  3. Athugið hvernið þið takið á streitu sem tengist fjármálum. Þegar kreppir að okkur eru sumir líklegri til að snúa sér að óheilbrigðum lífsstíl, svo sem að auka reykingar, áfengisneyslu, huggunarát eða fjárhættuspil. Fjárhagsþrengingar geta leitt til meiri árekstra og illdeilna milli hjóna. Takið eftir slíkum einkennum og leitið aðstoðar hjá sálfræðingi eða hjá heilsugæslunni áður en vandinn vex enn meira og verður að vítahring.
  4. Snúið kreppunni í tækifæri á að læra og breyta. Fjárhagslegar þrengingar geta orðið hvati að heilbrigðari aðferðum til að takast á við streitu. Þetta getur orðið hvati til þess að breyta um lífsstíl, taka upp ódýrari en jafnskilvirka líkamsrækt, ganga, sund eða venjulegt kort í ræktinni frekar en að halda áfram með “dekur-kortið”. Borða oftar heima með fjölskyldu og vinum frekar en að fara út að borða getur sparað peninga og þjappað ykkur saman. Nú er líka rétti tíminn til að skoða námstilboð sem bæta stöðu þína á vinnumarkaði.

Fagleg aðstoð, hvort sem það er á fjárhags- eða tilfinningasviði getur verið þörf eða nauðsyn. Stundum dugar að taka til í fjármálunum, stundum er streitan yfirþyrmandi og hindrar okkur í að taka á fjármálum. Þegar streitan leiðir til vítahrings ráðleysis og óvirkni er ástæða til að leita aðstoðar sálfræðinga.

Jón Sigurður Karlsson
cand. psych & oecon
Sérfræðingur í kliniskri sálfræði

www.persona.is

  • Sérfræðingur
  • Hafa samband
67725 1464561062499 3497241 n - Streitustjórnun á erfiðum tímum
Jón S. Karlsson
Jón Sigurður Karlsson er sérfræðingur í kliniskri sálfræði. Hann hefur fjölbreytta reynslu innan og utan opinbera heilbrigðiskerfisins. Greiningar eru sérsvið hans í starfi persona.is og líka þekking á því hvað er viðeigandi að gera allt eftir útkomunni úr greiningarferlinu. ADHD greiningar eru flestar. Víðtækt MMPI persónuleikapróf og ýmis próf á styrkleikum og veikleikum. Jón er einnig með víðtæka reynslu af vinnumarkaðsmálum, starfsendurhæfingu, EES-samstarfi o.fl. Hann hefur líka sótt sér þekkingu á sviði mannauðsmála, stjórnun, markþjálfunar o.fl.
www.persona.is
jon@persona.demo-site.is
loading - Streitustjórnun á erfiðum tímum
Skilaboðin hafa verið send!!
×
67725 1464561062499 3497241 n - Streitustjórnun á erfiðum tímum
Jón S. Karlsson
Jón Sigurður Karlsson er sérfræðingur í kliniskri sálfræði. Hann hefur fjölbreytta reynslu innan og utan opinbera heilbrigðiskerfisins. Greiningar eru sérsvið hans í starfi persona.is og líka þekking á því hvað er viðeigandi að gera allt eftir útkomunni úr greiningarferlinu. ADHD greiningar eru flestar. Víðtækt MMPI persónuleikapróf og ýmis próf á styrkleikum og veikleikum. Jón er einnig með víðtæka reynslu af vinnumarkaðsmálum, starfsendurhæfingu, EES-samstarfi o.fl. Hann hefur líka sótt sér þekkingu á sviði mannauðsmála, stjórnun, markþjálfunar o.fl.
www.persona.is
jon@persona.demo-site.is
Latest Posts
  • psychopath 1521669470 150x150 - Streitustjórnun á erfiðum tímum
  • e835b00a29f6043ecd0b470de7444e90fe76e7d718b717489df4c0 640 money 150x150 - Streitustjórnun á erfiðum tímum
  • work4 150x150 - Streitustjórnun á erfiðum tímum
  • no money 2070384 150 credit crisis 150x84 - Streitustjórnun á erfiðum tímum
Tags: streita

TengtGrein

eb36b1092cf3003ecd0b470de7444e90fe76e7d718b7174492f8c6 640 coffee e1521917208384 - Streitustjórnun á erfiðum tímum

Mikil Kóffínneysla hefur bein áhrif á að auka líkur á kvíða og streituviðbrögðum

15/07/2015
burnout 2158532 150 burnout - Streitustjórnun á erfiðum tímum

Kulnun í starfi

07/01/2009

Vinnutengd streita

Streita

Hvað er streita?

Leita

Engar niðurstöður
SKoða allar niðurstöður

Nýlegar greinar

  • Ástarsambönd
  • Sjálfskoðun
  • Mikil Kóffínneysla hefur bein áhrif á að auka líkur á kvíða og streituviðbrögðum
  • Geðklofi
  • Siðræn sjónskerðing og siðblinda (vor 2011)

Nýlegar athugasemdir

    Greinasafn

    Flokkar

    Tækni

    • Nýskráning
    • Innskráning
    • Entries feed
    • Comments feed
    • WordPress.org

    Persona.is

    Hefur sinnt geðheilbrigði Íslendinga í 20 ár

    Skoðaðu betur

    • Um Persóna
    • Lesa grein
    • Panta Tíma
    • Hafðu samband
    Menu
    • Um Persóna
    • Lesa grein
    • Panta Tíma
    • Hafðu samband

    Leita á Persona.is

    Um Persona.is

    Persona.is er með greinarsafn sálfræðilegra greina og prófa. AUk þess er Persona.is hluti af Sálfræðistofu Persona.is Þórunnartúni 6

    Staðsetning

    Facebook-f Facebook-messenger

    © 2020 Allur réttur áskilin. Vefur hannaður af Birni Harðarsyni

    This website uses cookies. By continuing to use this website you are giving consent to cookies being used. Visit our Privacy and Cookie Policy.